Eignamiðlun Suðurnesja kynnir í einkasölu Greniteig 4, 230 Keflavík.
Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 6 herbergja einbýlishús á 2 hæðum með 36,5 fm. auka íbúð.
Fyrsta hæðAnddyri með flísar á gólfi.
Hol með nýju harðviðaparkti á gólfi, gott fatahengi, þar er teppalagður stigi uppá 2 hæð hússins og einnig hurð niður í kjallaraherbergi.
Stofan er björt og rúmgóð og hefur nýtt harðviðarparket á gólfi.
Eldhús er með nýju harðviðarparketi á gólfi, nýleg hvít innrétting, ný eldavél, ofn og vifta ásamt nýjum vask og blöndunartæki. Úr eldhúsi er gengið inní
borðstofuna sem er með nýju harðviðarparketi á gólfi.
Þvottahús er með máluðu gólfi, nýtt salerni er innaf þvottahúsi og þar er hurð út á verönd.
Efri hæðTeppalagður stigi er upp á efri hæð hússins
Parket er á allri efri hæð hússins.
Þar eru
fjögur rúmgóð herbergi með fataskáp í tveim.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, hvít innrétting,
salerni og baðkar.
Lúga er uppá
háaloft.Auka íbúðAuka íbúðin er skráð 36,5 fm. og
hefur sérinngang.Anddyri er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi er í anddyrinu, þar er
salerni, innrétting og sturta.
Eldhús er með nýju harðviðaparket á gólfi, grá innrétting og eldavél.
Stofa er björt og rúmgóð með nýju harðparketi á gólfi.
Mjög stór og skjólstæð lóð er kringum húsið, sem bíður uppá mikla möguleika, hún er ræktuð og afgirt, lítill
geymsluskúr er á lóðinni að aftan og góður sólskáli að framan.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk, sbr. kauptilboð.