Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Hafnargötu 48, 230 Reykjanesbæ.Um er að ræða 170 fm einbýlishús á þremur hæðum, ásamt 28 fm bílskúr.
Eignin býður uppá mikla möguleika og er virkilega vel staðsett í hjarta bæjarins, í göngufæri við alla helstu þjónustu.
Til viðbótar húsinu má byggja rúmlega 600 fm. sem sé 5 íbúðarhús.
Möguleikarnir liggja í að hægt er að gera húsið upp og búa í því eða halda því í leigu. Síðan er möguleiki að byggja á lóðinni, í samræmi við tillögu á deiluskipulagi sem gert var á milli Hafnargötu og Suðurgötu.Hér má sjá tillögu af nýju deiliskipulagi.https://www.jees.is/copy-of-hafnargata-12Lýsing eignar:
Miðhæðin og ris.Sérinngangur er inn á miðhæð hússins. Komið er inn á
gang þar sem er fataskápur. Á hægri hönd er rúmgóð og björt
stofa og inn af henni önnur
stofa/borðstofa. Á hæðinni er einnig
eldhús og
gestasalerni.
Á ganginum er einnig stigi sem liggur upp á efri hæð hússins en þar eru
þrjú rúmgóð svefnherbergi. Mögulegt væri að breyta einu svefnherberginu í baðherbergi.
Úr borðstofunni (á miðhæð hússins) var hringstigi sem liggur niður á neðstu hæð hússins sem búið er að loka.
Neðri hæðin.Sérinngangur er inn í neðri hæðina. Komið er inní anddyri, þar innaf er stofa og eldhús ásamt svefnherbergi, baði, þvottahúsi og geymslu.
Bílskúr.Búið er að útbúa stúdíóíbúð í bílgeymslunni.
Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta
nýjar ofnalagnir að hluta
nýjir ofnar að hluta eru í húsinu.
Eignin þarfnast viðhalds en býður upp á mikla möguleika.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk, sbr. kauptilboð.