Lækjamót 12, 245 Sandgerði
71.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
213 m2
71.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
93.400.000
Fasteignamat
60.650.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Lækjamót 12, 245 Sandgerði
Fallegt og vel skipulagt 214 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á góðum stað í Sandgerði.
Rúmgóð og björt stofa, stórt eldhús með góðu skápaplássi, fjögur rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi, gott þvottahús, baðherbergi með sturtu og gesta baðherbergi í forstofu. Pallur og hitaveitu pottur með hitastýringu. Stór bílskúr með epoxy á gólfi, innréttingu, hillum, góðu millilofti og hleðslustöð fyrir rafbíla.
Nýlegt fljótandi harðparket á gólfum í herbergjum, þvottahúsi, gangi, stofu og eldhúsi. Fallegar dökkar innihurðar sem voru sprautaðar árið 2021 og á sama tíma var gert fataherbergi inn af hjónaherbergi. Hiti í gólfum.

Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.

Nánari lýsing:
Eignin er skráð 213,9 fm, þar af íbúðarrými 164,9 fm og bílskúr 49 fm.
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi. Úr forstofu er hurð inn í bílskúr.
Hol/gangur: Bjartur gangur með mikilli lofthæð og hol þar sem möguleiki er að hafa sófa og sjónvarp. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð, parket á gólfi og svalahurð út á pall sem er meðfram húsinu og þaðan er hægt að fara í gegnum hlið yfir á verönd sem er á baklóð.
Eldhús: Stórt eldhús með fallegri viðar innréttingu og eyju með eldavél. Mikið skápapláss, gott borðpláss og gert ráð fyrir eldhús/borðstofuborði. Parket á gólfi. Stórir gluggar sem snúa út á götu og gera rýmið bjart og skemmtilegt.
Svefnherbergi: Fjögur rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með lausum skápum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum. Góð viðar innrétting með miklu skápaplássi. Stór sturta með steyptum sturtubotni og upphengt klósett.
Þvottahús: Gengið inn í þvottahús af ganginum, parket á gólfi. Stór hvít innrétting með vaski og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er hurð út á afgirta verönd þar sem er hitaveitu pottur með hitastýringu.
Gestasalerni: Inn af forstofu. Góð innrétting og upphengt klósett. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Stór og rúmgóður bílskúr með epoxy á gólfi, stór innrétting meðfram útvegg, aksturshurð með rafmagnsopnara, stórt milliloft sem gefur gott geymslurými og heimahleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Hægt er að ganga beint inn í bílskúr um útidyrahurð og einnig innangengt úr forstofu.

Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á góðum stað í Sandgerði. Leikvöllur er örstutt frá húsinu og skóli, leikskóli og sundlaug í göngufæri. Verið er að byggja nýjan leikskóla í hverfinu.

Nánari upplýsingar veitir:
Erla María Guðmundsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Netfang: [email protected]
Sími: 869-1808

------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 með vsk, sbr. kauptilboð.


Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.