Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Seljudal 26A. 260 Reykjanesbæ. Um er að ræða fokhelt 3ja herbergja 120 m2 raðhús á einni hæð þar af er innbyggður 23,2 m2 bílskúr.
Húsin skiptast í anddyri, hol, stofu og eldhús sem er opið inní stofu. Stórt baðherbergi og þvottahús, tvö góð herbergi, geymsla og bílgeymsla, hægt er að útbúa geymsluloft í bílgeymslunni. Mögulegt er að breyta innra skipulagi að eignin ósk. Húsið er vel staðsett, stutt í grunnskóla og leikskóla sem eru í byggingu, 5 mínútna akstur í verslunarkjarna og aðra þjónustu. Mjög stutt er út á Reykjanesbrautina þar sem er um 20 mínútna akstur til höfuðborgarinnar og 10 mínútna akstur til Keflavíkurflugvallar.
Hægt er að fá húsið á misjöfnu byggingarstigi:
Fokhelt byggst 4 verð 46.5 millj.
Tilbúið til málningar byggst 5 verð 56,6 millj.
Fullbúið byggst 7 verð 70,9 millj. Almennt yfirlit yfir fokhelt hús.1.1 BurðarvirkiSökklar, útveggir, berandi innveggir og botnplötur eru staðsteypt með járnbentri steinsteypu. Þak er bárujárnsklætt timburþak.
1.2 EinangrunSökklar eru einangraðir með 75 mm. plasteinangrun..
1.3 LagnirHúsin eru hituð upp með gólfhitakerfi og eru þau komin í gólfplötuna.
Frárennslislagnir eru komnar í plötuna.
Neysluvatnslagnir eru lagðar í plötu
1.4 RaflagnirRaflagnadósir eru komnar í seypa milliveggi.
2 Frágangur innanhúss.Íbúðir verða seldar fokheldar.
2.1 MúrverkAllir steyptir veggir verða ómeðhöndlaðir tilbúnir til einangrunar að innan.
2.2 InnveggirInnveggur á milli bílskúrs og íbúðar eru komnir.
2 Frágangur utanhúss.
3.1 Múrverk.Útveggir verða múrhúðaðir að utan en ómálaðir.
3.2 ÞakfrágangurÞakið er hallandi timburþak klætt með viðukenndri bárujárnsklæðningu. Þakið er einangrað með steinull og rakavarnalagið er komið í loftið
3.3 Gluggar og útihurðirÚtihurðir og svalahurðir verða valdar úr timbri af vandaðri gerð.
Allir gluggar eru úr timbri af viðurkenndri gerð. Opnanleg fög eru úr timbri með öryggislæsing. Næturopnun er á opnanlegum fögum. Handföng eru valin m.t.t. að þau fari vel í hendi.
Gler í gluggum er tvöfalt K-einangrunargler.
Bílskúrshurðir verða úr áli. Miðað er við viðurkenndar hurðir sem eru og hafa verið á markaði hér síðustu ár. Viðurkennd þjónusta og ábyrgð í minnst eitt ár.
4 Frágangur lóðar5.1 Lóð o.fl.Lóð verður grófjöfnuð í réttri hæð að aftan með mold. Heimreið er malbikuð, plan og stéttar eru grófjafnað með möl.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 50, sími 420-4050Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk, sbr. kauptilboð.