Fífudalur 23, 260 Njarðvík
Tilboð
Parhús
5 herb.
195 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2007
Brunabótamat
81.300.000
Fasteignamat
77.000.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir í einkasölu Fífudal 23, 260 Reykjanesbæ.

Virkilega vel skipulagt og fallegt 195 m2 parhús þar af er innbyggð 33,2  m2. Bílgeymsla.
Fjögur svefnherbergi, eitt baðherbergi, stórt hol og stór stofa ásamt borðstofu, þvottahús og bílskúr og góð afgirt verönd að aftan með stórum pall. gólfefni eru flísar og parket. Íbúðarhluti hússins er skráður 161,8 m2. og bílgeymslan 33,2 m2.


Skipti á minni eign kemur til greina.

Nánari lýsing:
Mjög snyrtileg aðkoma er að húsinu, steypt innkeyrsla og stétt með hitalögn. Lóð er afgirt með gras að aftan ásamt stórri verönd að aftan með góðri lýsingu.

Anddyri: Gengið er inn í anddyri sem er með flísum á gólfi, góður fataskápur.
Komið er inn í hol, eldhús, stofu og borðstofu sem er í opnu björtu rými með harðparketi og flísum á gólfum.
Eldhús: Eldhúsið er opið inní stofu með flísum á gólfi, stór hvít innrétting, stór eyja skilur af hol og eldhús. Vifta, uppvöskunarvél, innbyggður ofn og helluborð.
Stofa: Stórir gluggar eru í stofu sem gera hana bjarta og fallega. Borðstofa er með harðparketi á gólfi, Quick step frá harðviðarvali. Þar er útengi út á verönd.
Herbergin: Svefnherbergin eru fjögur, öll mjög rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Stórt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, hornbaðkar, stór sturta og upphengt salerni, góð  innrétting. Útgengt er út í bakgarð frá baðherbergi.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með flísum á gólfi, stór innrétting, hurð út í bílgeymslu.
Bílgeymsla: Rúmgóða bílgeymsla með steyptu gólfi og aksturshurð. 
Mjög falleg eign. Húsið er steinsteypt að utan með viðargluggum  viðar- gluggar og hurðar eru í húsinu, gólfhiti er í öllu húsinu. Steypt plata er yfir öllu húsinu og gott geymsluloft er í þakrýminu.

Staðsetningin virkilega góð, falleg náttúra er allt um kring og stutt í ýmiskonar útivistarmöguleika. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt upp á Reykjanesbraut. Stapaskóli, einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins hefur tekið til starfa í þessu vaxandi hverfi og jafnframt mun opna þar almenningssundlaug og íþróttahús.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ,síma 420-4050 og á netfangið [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk, sbr. kauptilboð.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.