Vesturbakki 7G, 815 Þorlákshöfn
35.900.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
74 m2
35.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
27.400.000
Fasteignamat
10.600.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir atvinnuhúsnæði að Vesturbakka 7G, bil 107, Þorlákshöfn
 
Allar nánari upplýsingar hjá M. Sævar Pétursson sími. 420-4050 / 894-2252 netfang [email protected]
 
Um er að ræða atvinnu eða geymsluhúsnæði að Vesturbakka 7, á besta stað við höfnina í Þorláksshöfn.

Um er að ræða endabil um 74,6 m2 grunnflöt með um 30 m2 íbúð á efri hæð með sér inngangi.

Aukaíbúðin er með sér inngangi frá norðurhliðinni og er aðskilin frá neðrihæðinni. 

Anddyri: epoxymálning á gólfi, stigi upp í íbúð.
Stofa og alrými: með parketi á gólfi.
Eldhús: með flísum á gólfi, hvít innrétting með helluborði, viftu og tengi fyrir þvottavél. Eldhúsið er opið inní stofu.
Baðherbergi með flísum á gólfi, góð innrétting, sturta og salerni.


Nánari lýsing:

Húsið skiptist í 12 einingar. Inntaksrými er í norður enda hússins og er sameiginlegt. Gólfin eru máluð með epoxymálningu. Gólfhitakerfi er í gólfum. Skolvaskur er í hverri einingu og tengi fyrir salerni. Hefðbundin lýsing er í húsinu og rafmagn, gert er ráð fyrir einum 3ja fasa tengli. Lóðin er malbikuð með nægum bílastæðum.

Uppbygging húss:

Húsið er byggt ofan á steypta sökkla með hefðbundinni staðsteyptri plötu.
Útveggir:
Burðargrind hússins er úr límtré, klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Litur RAL 7016. Málningarhúð á veggeiningum er 55 míkron á þykkt og valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
Milliveggir:
Milliveggir eru úr álstoðum klæddir með spónarplötum og gifsi, einagraðir með steinull. Veggirnir eru sparslaðir og málaðir.
Hurðir:
Innkeyrsluhurðir eru frá Héðin, litur RAL 7016 með samlitum gluggum. Stærð hurða 380x400. Húsið er með vönduðum tré gluggum og hurðum. Litur RAL 7016.
Þak:
Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Málningarhúð 200 míkron. Litur RAL 7016.
Lóð:
Lóð er malbikuð og verður afgirta að aftan.

Á húsinu hvílir vaskkvöð sem kaupandi yfirtekur.
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050.



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. verðskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.