Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Laufengi 27, 112 Reykjavík
Um er að ræða fallega 3ja herbergja, 79,5 fm. íbúð á fyrstu hæð við Laufengi í Grafarvoginum.
Eignin er staðsett á góðum stað í Grafarvoginum í rólegu og barnvænu hverfi. Stutt í leik- grunn- og menntaskóla ásamt allri helstu þjónustu.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, geymsla/þvottahús, 2 svefnherbergi, pall.
Nánari lýsing:Komið er inn í
anddyri með flísum gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parket á gólfi. Þar eru stórir gluggar sem gera íbúðina bjarta og fallega. Í stofunni er útgengt út á hellulagða verönd og gras.
Eldhús er rúmgott með parket á gólfi, góð hvít eldhúsinnrétting, helluborð, ofn og vifta.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuhaus, snyrtileg hvít innrétting.
Svefnherbergin eru 2 talsins og bæði parketlögð, hjónaherbergið er rúmgott með stórum fataskáp.
Merkt
bílastæði.Bílaplan er malbikað og lóð að aftan er ræktuð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 og á netfangið [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.