Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Mávabraut 3D, 230 Reykjanesbæ.
Falleg 3ja herbergja, 89,2 fm, raðhús á tveimur hæðum á góðum stað í Keflavík. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, hol og stofa ásamt borðstofu, eldhús, þvottahús. Góðar svalir með heitum pott. Afgirt verönd að aftan.
Virkilega góð staðsetning, í göngufæri við verslunarkjarna, íþróttasvæði, sundlaug, grunn- og framhaldskóla og alla helstu þjónustu.
Eignin getur verið laus fljótlega.
Húsgögn geta fylgt með eftir samkomulagi.
Nánari lýsing:Snyrtileg aðkoma er að húsinu, innkeyrsla er malbikuð og stéttar steyptar.
Fyrsta hæð:Forstofa: Komið er inn í bjarta forstofu með flísum á gólfi og góðu skápaplássi
Hol: Frá forstofu er gengið inn í rúmgott hol sem tengir saman svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Svefnherbergin eru tvö talsins og bæði parketlögð. Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskáp. Þar er útgengt út á afgirta verönd
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, þar er baðkar, sturta og handklæðaofn.
Þvottahús er rúmgott, þar er opnanlegur gluggi.
Önnur hæð:Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi. Stórir gluggar og aukin lofthæð gerir rýmið bjart og fallegt.
Eldhús hefur snyrtilega hvíta eldhúsinnréttingu, þar er
útgengi út á rúmgóðan
pall með
heitum potti.
Steypt Bílskýli er fyrir framan húsið.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 og á netfangið [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.