Vesturhús 9, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
Tilboð
Fjölbýli
3 herb.
87 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1996
Brunabótamat
42.900.000
Fasteignamat
68.600.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir fallega 87,4 fm. 3ja herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi á góðum stað í Grafarvogi

Eignin skiptist í anddyri, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús, útigeymslu, bílastæði og stóra afgirta verönd.

Nánari lýsing:

Sér inngangur inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Stofa og eldhús í opnu björtu rými með parketi á gólfi og útgengi út á stóra afgirta verönd með útigeymslu.
Eldhús með parketi á gólfi, ljósri viðarinnréttingu, eldunareyju,  borðstofa.
Svefnherbergi (geymsla skv. teikningu) er með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi.
Gangur/hol með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með sturtubaðkari, innréttingu og opnanlegum glugga.
Sér þvottahús/geymsla með parketi á gólfi og innréttingu.

Stutt í Leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og aðra þjónustu. Auk þess er stutt í fallegar gönguleiðir.
Falleg eign í góðu hverfi sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu [email protected] og í síma 420-4050

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.