Framnesvegur 20, 230 Keflavík
127.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
195 m2
127.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
98.730.000
Fasteignamat
73.550.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir í einkasölu Framnesveg 20, 230 Reykjanesbæ.
Virkilega vel hönnuð og glæsileg penthouse íbúð á tveimur hæðum á góðum stað í Keflavík. Íbúðin hefur þrjár svalir með frábært útsýni yfir Keflavík og til sjávar.
Íbúðin er 4 herbergja, 195,8 fm. ásamt rúmgóðum yfirbyggðum svölum með heitum pott og sérbílastæði í bílakjallara.
Hönnun og útlit íbúðarinnar er einstakt, hún skartar granít á gólfi og vandaðar innréttingar. Mikil lofthæð er í íbúðinni sem og stórir gluggar sem gera hana bjarta og fallega með stórkostlegt útsýni yfir Keflavík og Faxaflóann.

 
Skipti á íbúð kemur til greina.


Nánari lýsing:
Íbúðin er merkt 701 og er á 7 hæð í 7 hæða lyftuhúsi.
Svalirnar eru þrjár talsins, úr svefnherberginu er gengið út á austur svalir með glæsilegt sjávarútsýni. Úr stofunni er útgengi á tvennar svalir annars vegar rúmgóðar yfirbyggðar svalir með heitum pott sem snýr í suð-vestur með stórkostlegt útsýni til sjávar og yfir bæinn og hins vegar er útgengi á svalir sem snúa til vestur með fallegu útsýni yfir Keflavík
Sérbílastæði er í bílakjallara tilbúin fyrir hleðslustöðvar, yfirbyggð gönguleið er frá bílastæðahúsi að eigninni.
Frábær staðsetning í göngufæri í alla helstu þjónustu, íþróttir, samgöngur, skóla og iðandi mannlíf.

Neðri hæð íbúðar:
Neðri hæðin er 145,3 fm. talsins
Forstofa: Björt og rúmgóð forstofa með granít á gólfi með sérsmíðuðum forstofuskáp.
Eldhús: Granít er á gólfi, góð viðar eldhúsinnrétting með granít borðplötu, gaseldavél, gufugleypi, og innbyggðum ofn.
Baðhergi: Góð baðherbergis innrétting með granít borðplötu, sturta og upphengt salerni, flísar á veggjum.
Stofa: Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu björtu rými. Stór stofa með mikla lofthæð og með gluggum til suður og vesturs með stórkostlegt útsýni yfir Keflavík. Þar er útgengi á tvennar svalir, annars vegar stórar yfirbyggðar svalir sem snúa til suð- vestur með heitum pott og stórkostlegu sjávarútsýni og hins vegar svalir sem snúa til vestur með fallegu útsýni yfir bæinn.
Hjónasvíta: Rúmgott svefnherbergi með granít á gólfi, þar er inngengi inná baðherbergi, auk þess er fataherbergi með góðum fataskápum og stigi er upp á rúmgott geymsluloft. Stórir gluggar og svalir sem snúa í austur eru í svefnherberginu með stórkostlegu sjávarútsýni.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með granít á gólfi og flísum á veggjum að hluta, góð innrétting og skápapláss, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, þar er útgengi út á suður svalir.

Efri hæð íbúðar:
Góður stigi er úr forstofunni uppá rúmgóða efri hæð íbúðar sem hefur parket á gólfi. Þar er rúmgott hol, svefnherbergi og baðherbergi sem hefur granít á gólfi og flísar á veggjum að hluta, baðkar og upphengt klósett. 
 
Sérgeymsla: Rúmgóð geymsla í séreign er á 1 hæð.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Endurbætur síðustu ár samkvæmt seljanda:
2018: Lyfta endurnýjuð
2020: Nýtt þak á bílahúsi
2021: 45 fm glerhýsi sett upp á svölum ásamt flísum og heitum pott.
2023: Nýtt svefnherbergi standsett á efri hæðinni, nýtt dýrasímakerfi með wifi tengingu, alhliða viðhalda, viðgerðir og málun á ytra byrði hússins.


Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ og í síma 420-4050 og á netfangið: [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk, sbr. kauptilboð.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.