Melbraut 29, 250 Garður
90.000.000 Kr.
Einbýli
6 herb.
185 m2
90.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1978
Brunabótamat
87.150.000
Fasteignamat
59.550.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Melbraut 29. 250 Garður.
Um er að ræða glæsilegt einbýlishús, 185 fm. 6 herbergja með bílskúr.
Húsið skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, 5 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, bílskúr, pall að aftan með heitum potti og sólpall að framanverðu.
 
Endurbætur hafa átt sér stað síðustu ár, m.a. var skipt um glugga að hluta og nýjar hurðar að hluta til. 
Gólfhiti er á gólfum þar sem flísar eru.

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Hol er rúmgott með flísum á gólfi. Þar er sjónvarpsrými.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parket á gólfi, stórir gluggar eru í stofunni sem gerir rýmið bjart og fallegt.
Eldhús hefur flísar á gólfi, snyrtileg eldhúsinnrétting með granít borðplötu, þar er helluborð, vifta, ofn og mikið skápapláss.
Svefnherbergin eru 5 talsins, öll parketlögð. Hjónaherbergið er rúmgott með stórum fataskáp.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, góð baðherbergisinnrétting með granít borðplötu. Þar er baðkar, sturta, handklæðaofn og upphengt salerni.
Innangengt er í rúmgóðan bílskúr. Miklir möguleikar standa til boða í þessum hluta hússins. Búið er skipta rýminu upp í bílskúr/geymslu, rúmgott herbergi, baðherbergi með sturtu og salerni. Þar er einnig þvottahús með útgengi út á pall með heitum potti.
Mikill og fallegur gróður er á lóð hússins.
Bílaplan er hellulagt
Staðsetningin er góð, í göngufæri við grunnskóla, matvöruverslun, sundlaug, líkamsrækt og íþróttahús.
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.