Tjarnargata 3, 230 Keflavík
65.000.000 Kr.
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
2 herb.
198 m2
65.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1960
Brunabótamat
74.200.000
Fasteignamat
34.750.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Tjarnargötu 3, 230 Keflavík.
 
Um er að ræða 198,3 fm atvinnuhúsnæði í hjarta bæjarins.
Eignin skiptist í jarðhæð skráð 136,5 fm og kjallara/geymslu skráð 61,8 fm.
Vinsæla draumaland er með rekstur í húsinu í dag.
Jarðhæðin er rúmgóð, þar eru stórir gluggar sem gerir rýmið bjart og fallegt.
Kjallarinn er einnig rúmgóður, þar er salerni og tvær geymslur.
Staðsetningin er góð, í hjarta bæjarins.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.