Guðnýjarbraut 15, 260 Njarðvík
110.000.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
214 m2
110.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
116.100.000
Fasteignamat
100.350.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Guðnýjarbraut 15, 260 Reykjanesbæ.

SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN

Um er að ræða glæsilegt, 214,5 fm. 6 herbergja einbýlishús á góðum stað í Njarðvík.
Húsið skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, 5 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, bílskúr/geymslu og sólpall með heitum potti.

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Hol er rúmgott með flísum á gólfi. Þar er aðstaða sem býður uppá ýmsa möguleika.
Alrýmið skiptist í eldhús, stofu og borðstofu sem eru í opnu rými, aukin lofthæð og stórir gólfsíðir gluggar eru í stofunni sem gerir rýmið bjart og fallegt.
Eldhús hefur flísar á gólfi, snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með miklu skápaplássi. Stór eldhúseyja með innbyggðu helluborði.
Útgengt er úr stofu út á sólpall með heitum potti.
Svefnherbergin eru 4 talsins, öll rúmgóð, búið er að útbúa eitt herbergi í bílskúrnum. Hjónaherbergið er rúmgott, þar er fatarými og útgengi út á sólpall.
Baðherbergi I hefur flísar á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, ljósaspegill. Þar er baðkar, sturta með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, handklæðaofn og upphengt salerni. Þar er útgengt út á verönd.
Baðherbergi II hefur flísar á gólfi, upphengt salerni og góða innréttingu.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, þar er vaskur og mikið skápapláss.
í Bílskúrnum eru tvö herbergi og tvær geymslur og býður bílskúrinn uppá ýmsa möguleika. Þar er flísar á gólfi.
Staðsetningin er góð, stutt í leik- og grunnskóla, verslunarkjarna.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.