Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Reykjanesveg 14, 260 Reykjanesbæ.
SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN
Um er að ræða glæsilega, 180,9 fm. íbúð í tvíbýli, þar af 37,5 fm. íbúð í bílskúr.
Íbúðin merkt 201, er 143,3 fm. og hefur verið skipt upp í tvær íbúðir. Auðvelt er að breyta því í eina íbúð.
Nánari lýsing:Komið er inn í
anddyri með teppalögðum stiga upp á 2 hæð. Í anddyri er
þvottahús.Búið er að skipta íbúðinni upp í
tvær íbúðir.
Íbúð ISkiptist í hol, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og svalir. Parket er á gólfi og flísar á baðherberginu.
Anddyri er rúmgott með stórum fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými. Útgengt er úr stofu út á svalir með fallegu útsýni.
Eldhús hefur snyrtilega svarta eldhúsinnréttingu með innbyggðum ísskáp, ofn, helluborði og viftu.
Svefnherbergin eru 2 talsins.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, gólfhiti, snyrtileg innrétting, sturta með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, og upphengt salerni.
Íbúð IISkiptist í hol, tvö rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi.
Svefnherbergin eru bæði parketlögð.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, gólfhiti, góð innrétting, sturta með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið og upphengt salerni.
Bílskúrnum hefur verið breytt í
íbúð sem skiptist í eldhús, stofu, eitt svefnherbergi og baðherbergi.
Eldhús og stofa/borðstofa eru í opnu rými með parket á gólfi. Eldhús hefur fallega viðarinnréttingu með innbyggðu helluborði og viftu. Þar er eldhúseyja.
Svefnherbergi hefur parket á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, góð innrétting, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Afgirt verönd með
sólpall er sameiginleg með íbúð á fyrstu hæð.
Staðsetningin er góð, stutt í leik- og grunnskóla, íþróttahús, matvöruverslun og alla helstu þjónustu.
Það sem hefur verið gert við eignina undanfarin ár er eftirfarandi:Árið 2022 voru gluggar endurnýjaðir að hluta, eldhús og baðherbergi endurnýjað, ný rafmagnstafla.
Árið 2021 var bílskúrinn var endurnýjaður árið 2021 og breytt í íbúð.
Árið 2023 var þak hússins yfirfarið og málað.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.