Pósthússtræti 1, 230 Keflavík
78.000.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
101 m2
78.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2005
Brunabótamat
57.890.000
Fasteignamat
53.950.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Pósthússtræti 1, 230 Reykjanesbæ.

Um er að ræða glæsilega 101 fm. 3ja herbergja íbúð með frábæru sjávarútsýni.
Húsið skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og yfirbyggðar svalir með fallegu útsýni.

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með parket á gólfi.
Eldhús hefur parket á gólfi, snyrtileg viðar eldhúsinnrétting. Eldhúseyja með innbyggðu helluborði og viftu.
Svefnherbergin eru 2 talsins, bæði rúmgóð með parket á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er rúmgóð í opnu björtu rými með parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar eru í stofunni sem gerir rýmið bjart og fallegt.
Úr stofunni er útgengt út á yfirbyggðar svalir með flísum á gólfi og fallegu útsýni.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, snyrtileg innrétting, sturta með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, góð innrétting með skápaplássi og vask.
Sér geymsla í kjallara
Sér bílastæði í bílakjallara.
Lyfta er í húsinu og nær niður í bílakjallara.
Stigangurinn er teppalagður og snyrtilegur.
Gólfhiti er í eigninni.
Staðsetningin er virkilega góð, eignin stendur á fallegum stað við sjóinn. Stutt er í alla helstu þjónustu og fallega hjóla- og gönguleið meðfram ströndinni.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.