Leirdalur 23, 260 Njarðvík
89.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
144 m2
89.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
77.100.000
Fasteignamat
71.050.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Leirdal 23, 260 Reykjanesbæ.

Um er að ræða glæsilega 144,4 fm. 4ja herbergja íbúð á 2 hæð, þar af 38,3 fm. bílskúr í tvíbýlishúsi.
Húsið skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og sólpall með heitum potti.

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Hol er rúmgott með flísum á gólfi.
Alrýmið skiptist í eldhús, stofu og borðstofu sem eru í opnu rými. Gólfsíðir gluggar eru í stofunni sem gerir rýmið bjart og fallegt.
Eldhús hefur flísar á gólfi, snyrtileg svört eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp, ofn, helluborði og viftu.
Svefnherbergin eru 3 talsins, öll rúmgóð með flísum á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, snyrtileg innrétting, sturta með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, þar er vaskur og mikið skápapláss.
Bílskúrinn er rúmgóður með flísum á gólfi og rafmagns aksturshurð.
Pallurinn er hellulagður, þar er heitur pottur og frábært útsýni.
Staðsetningin er góð, stutt í leik- og grunnskóla, verslunarkjarna.
Bílaplan er hellulagt með hitalögn
Gólfhiti er í eigninni.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.