Reynidalur 1, 260 Njarðvík
73.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
117 m2
73.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
56.400.000
Fasteignamat
57.150.000
Opið hús: 03. október 2024 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Reynidalur 1, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 3. október 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Reynidal 1, 260 Reykjanesbær.

Um er að ræða fallega 4ja herbergja, 117,6 fm. íbúð á 1. hæð með sérinngangi í tveggja hæða fjölbýlishúsi.
Eignin skiptist í anddyri, þvottahús, baðherbergi, eldhús, borðstofu, stofu, þrjú svefnherbergi, geymslu og sólpall.
Íbúð merkt 102.

Nánari lýsing:

Anddyri er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Þar er útgengt út á afgirtan sólpall.
Stór gluggi er í stofunni sem gerir rýmið bjart og fallegt.
Eldhús hefur góða innréttingu, eldhúseyja með innbyggðu helluborði, viftu og ofn. Dökkar flísar eru á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú talsins öll rúmgóð með parket á gólfi og fátaskápum.
Stór fataskápur er í hjónaherbergi eftir heilum vegg og nær upp í loft.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtuhaus.
Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi og skolvask.
Sérgeymsla í sameign.
Gólfhiti er í eigninni.
Sameignileg hjóla og vagnageymsla.
Bílastæði er malbikað. Þar eru sameiginlegar hleðslustöðvar.
 
Mjög falleg og björt íbúð. Góð staðsetning, stutt í leikskóla og grunnskólann Stapaskóla, þar verður einnig almennings sundlaug og íþróttahús. Stutt í fallegar gönguleiðir. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt uppá Reykjanesbraut.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu [email protected] og í síma 420-4050

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.