Heiðarhvammur 5, 230 Keflavík
39.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
62 m2
39.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1979
Brunabótamat
30.700.000
Fasteignamat
31.250.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Heiðarhvamm 5, 230 Keflavík.
 
Um er að ræða fallega íbúð á 3 hæð á góðum stað í Keflavík. 
Staðsetningin er frábær, barnvænt hverfi, í göngufæri við grunnskólann Heiðarskóla og stutt í alla helstu þjónustu.
Eignin skiptist í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús, stofu, borðstofu, svalir og geymslu. Gólfefni eru flísar og parket. 

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými, parket á gólfi, stórir gluggar eru í stofunni sem gerir íbúðina bjarta og fallega. Útgengt er út á stórar svalir.
Eldhús hefur parket á gólfi, stór innrétting með miklu skápaplássi, eldhúskrókur, eldavél og ofn.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, snyrtileg innrétting, baðkar með sturtuhaus, salerni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergið er rúmgott, parket á gólfi og stór fataskápur.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem staðsett er á fyrstu hæð ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Sameignin er snyrtileg og er stigagangur teppalagður.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 / 894-2252 og á netfangið [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu 70.000 kr.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.