Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Pósthússtræti 1, 230 Reykjanesbæ.
Um er að ræða glæsilega 101 fm. 3ja herbergja íbúð með frábæru sjávarútsýni.
Húsið skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og yfirbyggðar svalir með fallegu útsýni.
Nánari lýsing:Komið er inn í
anddyri með parket á gólfi.
Eldhús hefur parket á gólfi, snyrtileg viðar eldhúsinnrétting. Eldhúseyja með innbyggðu helluborði og viftu.
Svefnherbergin eru 2 talsins, bæði rúmgóð með parket á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er rúmgóð í opnu björtu rými með parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar eru í stofunni sem gerir rýmið bjart og fallegt.
Úr stofunni er útgengt út á
yfirbyggðar svalir með flísum á gólfi og fallegu útsýni.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, snyrtileg innrétting, sturta með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús hefur flísar á gólfi, góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, góð innrétting með skápaplássi og vask.
Sér geymsla í kjallara
Sér bílastæði í bílakjallara.Lyfta er í húsinu og nær niður í bílakjallara.
Stigangurinn er teppalagður og snyrtilegur.
Gólfhiti er í eigninni.
Staðsetningin er virkilega góð, eignin stendur á fallegum stað við sjóinn. Stutt er í alla helstu þjónustu og fallega hjóla- og gönguleið meðfram ströndinni.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.