Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Lerkidal 24, 260. Reykjanesbæ.
Um er að ræða glæsilegt 104 fm. 3ja herbergja raðhús.
Húsið skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, 2 svefnherbergi, geymslu, baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Nánari lýsing:Komið er inn í
forstofu með fataskáp upp í loft.
Hol er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergin eru 2 talsins, bæði rúmgóð með parket á gólfi og fataskápum. Stór fataskápur er í hjónaherbergi eftir heilum vegg og nær upp í loft.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, walk in sturta með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið og upphengt salerni. Á baðherberginu er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara með góðri innréttingu með skolvask og miklu skápaplássi.
Geymslan er rúmgóð.
Eldhús, stofa og borðstofa er í opnu björtu rými með parket á gólfi. Stórir gluggar eru í stofunni sem gerir rýmið bjart og fallegt. Úr
stofunni er útgengt út á stóran afgirtan pall.
Eldhús hefur parket á gólfi, snyrtileg eldhúsinnrétting sem nær upp í loft. Í henni er innbyggður ísskápur, uppþvottavél og ofn.
Bílaplan er hellulagt
Staðsetningin er góð, stutt í leik- og grunnskóla og uppá Reykjanesbraut.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangi [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.