Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Engjadal 8, 260 Reykjanesbæ.
Um er að ræða fallega 2ja herbergja, 70 fm. íbúð á 1. hæð með sérinngangi í tveggja hæða fjölbýlishúsi.
Eignin skiptist í anddyri, þvottahús, baðherbergi, eldhús, borðstofu, stofu, eitt svefnherbergi og sólpall.
Íbúð merkt 103.Nánari lýsing:Snyrtileg aðkoma er að húsinu, innkeyrsla og
sérmerkt bílastæði eru malbikuð,
Anddyri er með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Þar er rúmgott
þvottahús með innréttingu, vask og miklu skápaplássi.
Eldhús hefur hvíta innréttingu, góð heimilistæki, parket er á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Þar er útgengt út á
afgirtan sólpall.Svefnherbergið er rúmgott með parket á gólfi, þar er stór fataskápur.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, upphengt salerni, sturta með með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið.
Leikvöllur er á lóð fyrir aftan.
Mjög falleg og björt íbúð. Góð staðsetning, stutt í leikskóla og grunnskólann Stapaskóla, þar verður einnig almennings sundlaug og íþróttahús. Stutt í fallegar gönguleiðir. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt uppá Reykjanesbraut.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu [email protected] og í síma 420-4050
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk.